
26.4.2006
Það var góð þátttaka og stemming á styrktarballinu s.l. laugardag. Nú er um að gera að taka frá laugardaginn 13. maí. Þá verður styrktardansleikur í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem enginn annar en Páll Óskar snýr skífum.
19.4.2006 Hinsegin dagar nálgast óðfluga og ef vel á til að takast veitir ekki af fjármagni til að standa undir öllum herlegheitunum. Fyrsti styrktardansleikur Hinsegin daga í ár verður í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 22. apríl.
2.9.2005 Margir tóku myndir á Hinsegin dögum í ár eins og fyrri ár. Þeim áfanga hefur nú verið náð að Gay Pride í Reykjavík er stærsta hinsegin hátíðin á Norðurlöndum og þar hefur litla Ísland velt Stokkhólmi úr sessi, sem hefur verið stærst til þessa.
16.8.2005 Um eða yfir fimmtíu þúsund manns mættu í gleðigöngu og útiskemmtun Hinsegin daga í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 6. ágúst. Hátíðin fór mjög friðsamlega fram í blíðskapar veðri. Aldrei hafa fleiri sótt hátíðina en á þessu ári.
16.7.2005 Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride verða haldnir í sjöunda skipti dagana 4. – 7. ágúst næstkomandi. Hátíðin stækkar á alla kanta og er nú orðin fjögurra daga hátíð. Fimmtudaginn 4. ágúst verður Dívukvöld á NASA , þar sem ein vinsælasta söngkona Skota, Carol Laula, kemur fram ásamt hinni upprennandi stjörnu Evu Karlottu.
11.7.2005 Nú eru aðeins um þrjár vikur til Hinsegin daga og kominn tími til að hita sig upp fyrir hátíðina. Föstudaginn 15. júlí verður stórstyrktardansleikur á NASA þar sem allur ágóði af miðasölu rennur til Hinsegin daga. Plötusnúður verður enginn annar en Páll Óskar. Þá er dagskrárrit Hinsegin daga komið út og því um að gera að kynna sér þá frábæru dagskrá sem er framundan.
22.6.2005 Hinsegin dagar í Reykjavík halda styrktardansleik á Kaffi Reykjavík, laugardaginn 25. júní. DJ Georg þeytir ekta gay skífur fram á nótt. Miðaverð er 1.000 kr. og rennur allur ágóði að miðasölu til Hinsegin daga. Húsið opnar kl. 23:00.
10.6.2005 Af óviðráðanlegum ástæðum hefur styrktardansleik Hinsegin daga, sem vera átti á hótel Borg fimmtudaginn 16. júní, verið frestað. Við vekjum athygli á stór styrktardansleik Hinsegin daga sem verður á NASA föstudaginn 15. júlí, eða eftir rúman mánuð og hvetjum alla til að taka þann dag frá í dagatalinu hjá sér og hvetja alla vini og vandamenn til að gera það sama.
21.4.2005 Hinsegin dagar hafa gert samstarfssamning við San Francisco Gay Pride. Í tilefni þess bjóðum við upp á hópferð til þessar höfuðborgar samkynhneigðra í lok júní. Hinsegin dagar verða með vagn í göngunni í San Francisco og þeir sem fara í hópferðina geta annað hvort tekið þátt í göngunni, eða fylgst með henni úr heiðursstúku en miði í hana fylgir með í pakkanum. 6.4.2005 Skipulagning Hinsegin daga 2005 er vel á veg komin. Óhætt er að fullyrða að dagskráin verður vönduð og margt mun koma á óvart. Eins og allir vita kostar töluverða fjármuni að halda svo stóra hátíð, þótt allir sem koma að skipulagi og undirbúningi gefi sína vinnu.
Pride ball í Þjóðleikhúskjallaranum
Stærsta hinsegin hátíð á Norðurlöndum
Um eða yfir 50 þúsund manns á Hinsegin dögum
Fjögurra daga hinsegin hátíð
Stórstyrktardansleikur á NASA 15. júlí
Styrktarball fyrir Hinsegin daga á Kaffi Reykjavík
Styrktarballi á Borginni 16. júní aflýst
Hópferði Hinsegin daga til San Francisco
Styrktardansleikir Hinsegin daga