
Hinsegin dagar í Reykjavík - Gay Pride, eru sjálfstæð sjálfboðaliðasamtök sem starfa eftir samþykkt sem gerð var um stofnun þeirra árið 1999. Samkvæmt henni eiga öll félög sem vinna að málefnum samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og kynskiptinga rétt á að skipa fulltrúa í samstarfsnefnd. Samstarfsnefndin fer með úrslitavald í Hinsegin dögum. Öllum samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og kynskiptingum er hins vegar frjálst að mæta á fundi samstarfsnefndarinnar.